Um Summu
Starfsemi Summu byggir á virðisaukandi, hugkvæmum, öguðum og traustum lausnum fyrir viðskiptavini. Sértæk þekking á rekstri innviðasjóða og einstök reynsla starfsfólksins er hornsteinn þessarar nálgunar.
Summa er að fullu í eigu starfsmanna sem hafa áratuga reynsla af eignastýringu og öðrum störfum á fjármálamarkaði og er því óháð öðrum aðilum á markaði.
Þórunn Helga Þórðardóttir
Þórunn Helga Þórðardóttir útskrifaðist með meistaragráðu frá lagadeild Háskólans í Reykjavík í janúar 2010 og hlaut réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi 2012. Þórunn útskrifaðist auk þess með LL.M-gráðu frá lagadeild Columbia University vorið 2013 og MBA gráðu frá Háskóla Reykjavíkur vorið 2025. Þórunn er óháður stjórnarmaður og var kjörin í stjórn Summu 2016.
Bjarni Karl Guðlaugsson
Bjarni Karl Guðlaugsson útskrifaðist úr University of South Carolina með gráðu í fjármálum og endurskoðun 1996 og starfaði hjá KPMG í New York við endurskoðun og ráðgjöf. Hann hóf störf hjá Búnaðarbankanum árið 2000 og starfaði síðar hjá Kaupþingi og Stefni einkum við rekstur erlendra fjárfestingasjóða. Frá 2017 hefur Bjarni Karl sinnt ýmsum ráðgjafaverkefnum og einnig unnið sem leiðsögumaður. Bjarni Karl var kjörinn í stjórn Summu í maí 2020.
Júlíus Jón Jónsson
Júlíus Jón Jónsson lét af störfum eftir 40 ára starf hjá HS Veitum og forverum þess 2022. Júlíus er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og réðist sem fjármálastjóri til Hitaveitu Suðurnesja 1982 og var orðinn forstjóri þess félags 10 árum síðar. Hitaveitu Suðurnesja var skipt upp í tvö félög, HS Orku og HS Veitur, árið 2008 og gegndi Julius Jón forstjórastarfi beggja félaga til loka árs 2013. Hann var síðan forstjóri HS Veitna frá ársbyrjun 2014 þar til hann lét af störfum. Júlíus var kjörinn í stjórn Summu í maí 2022.