Ráðgjöf

Sérstaða Summu

Sérstaða Summu liggur í reynslu og þekkingu starfsmanna sem leggja áherslu á að veita virðisaukandi, hugkvæmar og  traustar lausnir og ráðgjöf til viðskiptavina samhliða vandaðri greiningu og markvissum vinnubrögðum.

Sérsvið Summu eru verkefni á sviði hagrænna og félagslegra innviða, þar sem víðtæk þekking og reynsla starfsmanna í  verkefna- og framkvæmdafjármögnun, sem og áhættugreiningu, nýtist vel.

Summa hefur lagt áherslu á verkefni á sviði endurnýjanlegrar orku og nýtingu hennar og verkefni sem leysa brýnar umhverfis- og félagslegar áskoranir, t.d. á sviði samgangna.

Áhersla er lögð á eftirfarandi þætti sem tvinnast saman við þau sérsvið sem félagið býður upp á:

  • Mat á sérhæfðum fjárfestingum eða verkefnum
  • Ýmsar sértækar og tæknilega flóknar lausnir
  • Heildarlausnir varðandi fjármögnun fyrirtækja
  • Áhættugreiningar og ráðgjöf vegna stýringu á áhættu

Fjármögnun

Summa veitir heildstæða ráðgjöf í tengslum við fjármögnun verkefna, framkvæmda eða fyrirtækja. Áhersla er lögð á heilbrigða fjárhagslega uppbyggingu fyrirtækis þannig að það mæti áhættum og þörfum í rekstri með hagsmuni hagaðila að leiðarljósi.

Summa hefur unnið að fjölmörgum verkefnum á sviði innviða eins og samgangna, endurnýjanlegrar orku, orkuinnviða og fráveitna sem og félagslegra innviða, þar sem reynt hefur á viðamikla áhættugreiningu og samspil hennar við skipulag fjármögnunar.

Ráðgjöf Summu hefur verið á sviði:

  • Einkaframkvæmda eða samstarfs hins opinbera og einkaaðila
  • Framtaksfjárfestinga og meðfjárfestinga
  • Almennrar lánsfjármögnunar fyrirtækja
  • Heildarfjármögnunar, samspils framtaksfjárfestinga og lánsfjármögnunar

Starfsmenn Summu búa yfir yfirgripsmikilli þekkingu á fjármögnun og áhættugreiningu. Það styður við það að verkefni af þessu tagi sé farsællega til lykta leidd.

Summa hefur heimild til fjárfestingaráðgjafar skv. starfsleyfi félagsins frá Seðlabanka Íslands. Hugtakið fjárfestingaráðgjöf er skilgreint sem „persónulegar ráðleggingar til viðskiptavinar í tengslum við fjármálagerninga, hvort sem er að frumkvæði viðskiptavinarins eða þess sem þjónustuna veitir“ í lögum 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.